Erlent

Ofsóknir gegn gyðingum aukast á ný

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bænahús gyðinga í helgu borginni Jerúsalem. Mynd/ AFP.
Bænahús gyðinga í helgu borginni Jerúsalem. Mynd/ AFP.
Gyðingahatur eykst frá ári til árs, segir Raphaël Evers, rabbíi í gyðingasamfélaginu í Amsterdam, í samtali við norska blaðið Aftonposten.

Hann segir að gyðingar í Evrópu upplifi óöryggi. Oftast verði þeir fyrir hrópum og köllum, en þeir hafi einnig orðið fyrir árásum vegna uppruna síns. Hollensk stjórnvöld segja að árásir á gyðinga hafi aukist mjög. Sérstaklega hafi orðið vart við aukningu þegar átök brutust út á Gaza í fyrra. Stjórnvöld í Hollandi telja að í flestum tilfellum séu það nýbúar úr röðum múslima sem standi að baki eineltinu gegn gyðingum.

Aftenposten segir að ástandið í Hollandi sé ekkert einsdæmi. Samtök sem berjast gegn rasisma segja að árásum á gyðinga og bænahús þeirra hafi fjölgað mikið. Börn gyðinga séu lögð í einelti, ráðist sé á fólk, krotað sé á bænahús gyðinga og bensínsprengjum kastað að þeim.

Allt frá Seinni heimsstyrjöldinni hafa árásir á gyðinga ekki verið fleiri en í fyrra, samkvæmt skýrslu frá Gyðingastofnuninni. Það er stofnun á vegum ríkisstjórnar Ísraels.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×