Erlent

Breska lögreglan leitar að hrottalegum barnaníðingi

Myndin er heldur óskýr en lögreglan í Bretlandi hefur óskað eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á andstyggilegan barnaníðing.
Myndin er heldur óskýr en lögreglan í Bretlandi hefur óskað eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á andstyggilegan barnaníðing.

Lögreglan í Bretlandi leitar að barnaníðingi sem hefur verið að misnota unga drengi á aldrinum 6-10 ára en hann myndar ofbeldið og birtir þar svo á netinu.

Mynd af manninum hefur verið birt í helstu fjölmiðlum Bretlands og biður lögreglan um aðstoð almennings við að bera kennsl á hrottann.

Lögreglan fann myndböndin ógeðfelldu á netinu á dögunum. Myndböndin eru óskýr en þar má samt sem áður sjá hvernig maðurinn misnotar lítinn dreng á meðan annar lítill drengur er neyddur til þess að fylgjast með ofbeldinu.

Lögreglan telur að kynferðisofbeldið hafi átt sér stað erlendis en maðurinn virðist hafa ferðast til Egyptalands, Malasíu og Ítalíu. Þá virðist hann hafa sterk tengsl við Dubai.

Maðurinn virðist vera á fertugsaldri, í yfirvigt, klæddur í svartan bol. Lögreglan telur að maðurinn sé hugsanlega frá Manchester í Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×