Erlent

Obama í óvænta heimsókn til Afganistan

Barack Obama Bandaríkjaforseti er nýlentur í Afganistan til óvæntrar heimsóknar. Þetta er í fyrsta skipti sem Obama kemur til Afganistan síðan hann tók við embætti.

Áætlað er að forsetinn dvelji í landinu í fáeinar klukkustundir en talið er að hann ætli að þrýsta á forseta landsins, Hamid Karzai, til að herða baráttu gegn spillingu og eiturlyfjasmygli. Obama tilkynnti um fjölgun í herliði Bandaríkjamanna í Afganistan rétt fyrir jól og hyggst bæta 30 þúsund hermönnum.

Enn sem komið er hafa aðeins nokkur þúsund þeirra skilað sér til Afganistan en eiga allir að vera komnir til landsins í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×