Erlent

Kosningabarátta í kólerufaraldri

Miklar skemmdir urðu á forsetahöllinni í Port-au-Prince í jarðskjálftanum í janúar.nordicphotos/AFP
Miklar skemmdir urðu á forsetahöllinni í Port-au-Prince í jarðskjálftanum í janúar.nordicphotos/AFP
Jarðskjálftinn á Haíti í janúar kostaði um 300 þúsund manns lífið. Uppbygging hefur gengið mjög hægt, þrátt fyrir loforð helstu ríkja heims um öfluga aðstoð, og nú bætist kólerufaraldur ofan á allt saman. Vandinn vanmetinnSamkvæmt opinberum tölum hefur kólerubakterían nú lagt meira en þúsund manns að velli og sent um 16 þúsund manns á sjúkrahús. Hjálparstofnanir telja sumar að vandinn sé vanmetinn.

Eins og jafnan á hamfara­svæðum óttuðust margir að smitsjúkdómar myndu breiðast út í kjölfar jarðskjálftans. Engra slíkra sjúkdóma varð þó vart fyrr en um miðjan október, en síðan þá hefur kóleran breiðst hratt út um landið.

Ástæða kólerufaraldursins er skortur á hreinu vatni og góðri hreinlætisaðstöðu almennt, auk þess sem erfitt er að koma læknishjálp til fólks bæði í sveitum landsins og í borgunum, þar sem fólk hefst víða við í bráðabirgðahúsnæði og þéttbyggðum fátækrahverfum.

Kólera smitast með vatni og mat og veldur bæði háum hita og svæsnum niðurgangi. Þótt lítil smithætta sé af venjulegri snertingu fólks hafa margir áhyggjur af því að smithættan verði meiri þar sem margir eru saman komnir og hreinlætisaðstaða léleg. Kosningar nálgastKólerufaraldurinn hefur þegar sett mark sitt á kosningabaráttuna. Í vikunni efndi Michel Martely, vinsæll söngvari sem jafnframt er í framboði, til kosningafundar og hópgöngu í bænum Crois-des-Bouquettes þar sem fólk gekk í kosningaham niður eina götuna, syngjandi, berjandi á trumbur og veifandi kosningaspjöldum.

Þúsundir manna biðu í almenningsgarði þar sem frambjóðandinn ætlaði að flytja ræðu sína.

Þegar gangan nálgaðist garðinn var hins vegar komið annað hljóð í strokkinn. Fólkið var farið að syngja: „Kólera! Kólera“ og inn á milli var skotið hrópum um óánægjuna sem grafið hefur um sig í samfélaginu.

Brosið stirðnaði á frambjóðandanum, sem var þó ekki lengi að átta sig á stöðunni og tók sjálfur að syngja hástöfum með fólkinu um kólerufaraldurinn.

„Við stundum kosningabaráttuna rétt eins og hér væri engin kólera,“ sagði Martely við blaðamenn stuttu seinna. „Svo við föðmum alla að okkur, erum hjá fólki og göngum með því – og vonum rétt eins og fólkið að við sleppum við smit.“ ÓvissaKosningabaráttan hafði þó gengið nógu brösuglega áður. Lengi framan af var óljóst hve margir yrðu í framboði, og nú þegar aðeins ellefu dagar eru til kosninga hafa skoðanakannanir reynst bæði óáreiðanlegar og misvísandi.

Núverandi forseti, Rene Preval, hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki tekið uppbyggingarstarfið eftir jarðskjálftann nógu föstum tökum. Flokkur hans, Lespwa, á fyrir vikið erfitt uppdráttar.

Meðal forsetaframbjóðenda eru tveir fyrrverandi forsætis­ráðherrar, sem báðum hefur verið steypt af stóli. Einnig er eiginkona eins fyrrverandi forseta í framboði og einn verksmiðjueigandi vonast til að ná kjöri.

Jude Celestin, forstjóri byggingafyrirtækis í ríkiseigu, er með forskotið í að minnsta kosti einum skilningi: Dýr kosningaspjöld og auglýsingamiða frá honum er að finna víðar en auglýsingar nokkurs annars frambjóðanda. Söngvarinn Martely virðist einnig eiga góðu fylgi að fagna, enda þekktur fyrir söng sinn undanfarna áratugi og kann að höfða til fjöldans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×