Ástkona Svíakóngs leysir frá skjóðunni Óli Tynes skrifar 12. nóvember 2010 14:51 Camilla Henemark.
Ein af meintum ástkonum Svíakonungs hefur staðfest að þau hafi átt í ástarsambandi seint á níunda áratug síðustu aldar. Það gerir hún í samtali við sænska blaðið Expressen. Ástkonan heitir Camilla Henemark og er þekkt söngkona í Svíþjóð. Hún söng um skeið með hljómsveit sem hét Army of Lovers. Hún er eina konan sem er nafngreind í nýju bókinni um Karl Gústaf. Camilla segir að hún hafi ekki gefið höfundum bókarinnar neinar upplýsingar um samband þeirra konungs. Höfundarnir eru blaðamenn. Hún segir að einn þeirra hafi haft samband við sig fyrir um tveim árum og óskaði eftir viðtali. Hún hafi haldið að ætlunin væri að ræða um hana og tónlist hennar. Þegar hún gerði sér grein fyrir að það átti að grafast fyrir um samband hennar og Karls Gústafs segist hún hafa gengið á dyr. Ætlaði ekkert að tjá sig Jafnvel eftir að bókin kom út segist hún hafa ætlað að þegja þunnu hljóði. Hún hafi ákveðið að svara eins og hún var viss um að kóngurinn myndi svara: No comment. Það hafi breyst eftir að konungur svaraði spurningum um málið á fundi með tugum fréttamanna. Hann eiginlega staðfesti að þetta hefði gerst. Karl Gústaf sagði við fréttamenn eitthvað á þá leið að þetta væri löngu liðin tíð. Hann hafi rætt málið við fjölskyldu sína og þau hafi ákveðið að horfa fram á veginn. Eftir það segist Camilla hafa ákveðið að segja sína sögu. Og hún ber konungi afskaplega vel söguna. Camilla Henemark er nú 46 ára gömul. Hún er fædd í Stokkhólmi árið 1965. Móðir hennar var sænsk en faðir hennar frá Nígeríu. Karl Gústaf Svíakonungur er fæddur 1946 og því átján árum eldri en söngkonan.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira