Enski boltinn

Holloway hélt snókermót fyrir leikmenn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Ian Holloway, stjóri Blackpool, brá á það ráð að halda snókermót fyrir leikmenn sína þegar hvassviðri gerði það að verkum að þeir gátu ekki æft.

„Ég hef gert ýmislegt með leikmönnum í gegnum tíðina - gert sandkastala og farið í sund," sagði Holloway. „En strákarnir hafa gaman að samkeppni."

„Snóker snýst um samhæfingu augna og handa og er róandi íþrótt. Ég var með lítinn bikar sem að DJ Campbell vann."

Ísraelinn Dekel Keinan hlaut skammarverðlaun fyrir sína frammistöðu. „Ég held að það séu ekki mörg snókerborð í fullri stærð á hans heimaslóðum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×