Bók til varnar barnaníðingum olli usla á Amazon 11. nóvember 2010 08:48
Netbóksalan Amazon, sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, lenti í vandræðum vegna bókar sem seld var á vefnum og er einskonar leiðarvísir fyrir barnaníðinga. Amazon hefur ávallt gefið rithöfundum sem gefa bækur sínar út sjálfir færi á að selja þær í vefversluninni gegn hluta af hagnaðinum. Fjölmargir viðskiptavinir hótuðu því að hætta viðskiptum við verslunina en bókin heitir Leiðarvísir pedófílsins, eða "Pedophile's Guide to Love and Pleasure: a Child-lover's Code of Conduct." Í bókinni, sem gefin er út á rafrænu formi, er því haldið fram að þeir sem haldnir séu barnagirnd séu misskildir einstaklingar og segist höfundurinn, Philip Greaves, því hafa skrifað einskonar leiðarvísi sem hjálpi þeim að fara að lögum. Í viðtali við CNN sagði hann að „sannir pedófílar elski börn og myndu aldrei meiða þau." Eigendur Amazon eru í klemmu, þeir segjast ekki vilja selja bækur sem ýti undir glæpsamleg athæfi, en hinsvegar vilji þeir forðast ritskoðun í lengstu lög. Höfundar sem selja bækur á síðunni eru látnir samþykkja reglur sem banna ósiðlegt og meiðandi efni. Útlistun á því hvað sé ósiðlegt er hinsvegar hvergi að finna, heldur er höfundunum í sjálfsvald sett að meta það. Eftir að fjölmargir höfðu mótmælt bókinni var þó ákveðið að taka hana úr sölu.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira