Innlent

Féð fór í rekstur borgarstjórnarflokksins

Ólafur F. Magnússon
Ólafur F. Magnússon
„Þeir áttu ekkert að fá hann, þeir reyndu að fá hann eftir ár," segir Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins. Sigurjón Þórðarson og Guðjón Arnar Kristjánsson í Frjálslynda flokknum sögðu á Vísi fyrr í kvöld ekki fá að hitta Jón Gnarr borgarstjóra vegna dráttarvaxta og styrks sem þeir telja sig eiga inni.

Þeir segja að Ólafur F. hafi greitt sjálfum sér styrkinn þegar hann, var genginn úr flokknum og hafði stofnað borgarstjórnarflokkinn, tók við sem borgarstjóri, sem óháður borgarfulltrúi. Ólafur segir þetta ekki rétt. „Ég greiddi ekki sjálfum mér hann, það er bara mannorðsárás. Þessi styrkur fór til borgarstjórnarflokksins, það fór ekki ein einasta króna í minn vasa. Allir sem þekkja mín störf vita að ég er ekki haldinn þessari snýkjuþörf sem virðist viðgangast meðal stjórnmálamanna."

Ólafur F. segir að ef þeir, Sigurjón og Guðjón, séu að reyna að vega að sér megi þeir gera það. „Ég nenni ekki einu sinni að svara þeim. Það er ekkert annað en lágkúra og útúrsnúningur að reyna herma upp á mig að ég sé eins og hinir stjórnmálamennirnir, ég held að Guðjón Arnar sé það, en ég er það ekki. Féð fór í það sem því var ætlað, að reka Borgarstjórnarflokkinn en ekki greiða sukk stjórnmálaflokkanna."

Hann segir að allt hafi verið gegnsætt og eðlilegt þegar að styrkurinn, sem var upp á rúmar þrjár milljónir króna, hafi farið til borgarstjórnarflokksins. „Ef þeir vilja elta mig, þá mega þeir gera það, þá grípa þeir bara í tómt. Þeir geta hugsanlega reynt að gera kröfu á hendur á borginni, en ég skulda engum neitt þarna í borginni nema í besta falli að hreinsa mannorð mitt."

Á síðasta borgarstjórnarfundi Ólafs í vor vildi hann að það færi fram lögreglurannsókn á því hvernig þeim 130 milljónum var varið, sem fór til flokkanna. Hann stendur enn á þeirri skoðun. „Ég spurðist fyrir um það, enginn þeirra gat gert grein fyrir því í hvað peningarnir hefðu farið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×