Enski boltinn

Arsenal áfrýjar brottvísun Koscielny

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images

Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Arsenal hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Laurent Koscielny fékk í leik liðsins gegn Newcastle um helgina.

Þetta var í annað sinn á leiktíðinni sem að Koscielny er rekinn af velli en í þetta sinn fékk hann rauða spjaldið fyrir að brjóta á Nile Ranger, leikmanni Newcastle, þegar hann var að sleppa í gegnum vörn Arsenal.

Enska knattspyrnusambandið mun taka málið fyrir í dag og kemur þá í ljós hvort að Koscielny geti spilað með Arsenal gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni á morgun.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×