Ekki skvetta jógúrt ef hinn bílstjórinn er með skammbyssu Óli Tynes skrifar 9. nóvember 2010 15:17 Þú vilt semsagt ekki jógúrt.
Gerald Williams varð öskuvondur þegar Mark Flannery svínaði fyrir hann á Interstate 95 í Virginíu. Gerald keyrði Lexusinn alveg upp að Toyota Rav4 jeppa Marks og hékk þar. Mark svaraði með því að smábremsa öðru hvoru. Þannig óku þeir í rykkjum eftir Interstate 98 og urðu sífellt reiðari. Loks missti Gerald alveg stjórn á sér. Hann reif upp jógúrt dollu af farþegasætinu og grýtti henni í Toyotuna. Mark dró þá upp skammbyssu og miðaði á Lexusinn. Mórallinn í sögunni Sem betur fer höfðu þeir þó vit á að hringja í neyðarlínuna. Báðir í einu. Lögreglan skipaði þeim að beygja út í útskot þar sem lögreglumaður handtók þá báða. Gerald Williams var ákærður fyrir að kasta aðskotahlut í bifreið á ferð, sem er alvarlegur glæpur. Mark Flannery var ákærður fyrir að aka ógætilega og veifa skammbyssu. Það telst smávægilegt umferðarlagabrot. Mórallinn í þessari sögu er náttúrlega sá að ef þú ert að fara að keyra í Bandaríkjunum skaltu frekar skjóta aðra bílstjóra, en gefa þeim jógúrt.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira