Stoke vann langþráðan sigur á Birmingham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2010 20:50 Dean Whitehead skorar hér sigurmark Stoke í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Stoke City endaði fjögurra leikja taphrinu í ensku úrvalsdeildinni með 3-2 heimasigri á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímanna á bekknum en Dean Whitehead skoraði sigurmark Stoke-liðsins fimm mínútum fyrir leikslok. Robert Huth bar fyrirliðabandið hjá Stoke í fjarveru Ryan Shawcross og kom sínum mönnum í 1-0 með marki rétt fyrir hálfleik. Ricardo Fuller reyndi þá skot sem fór af varnarmanni og til Huth sem skoraði auðveldlega úr miðjum vítateignum.Þetta var aðeins annað mark Stoke í fyrri hálfleik á tímabilinu en liðið hafði verið markalaust í fyrri hálfleik í níu leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld. Stoke var miklu betra í fyrri hálfleik en í þeim síðari fór Birmingham-liðið að ógna meira. Birmingham átti þannig nokkur góð færi á stuttum tíma um miðjan hálfleikinn en aðeins skömmu seinna kom Ricardo Fuller Stoke í 2-0 með frábæru marki eftir einstaklingsframtak. Það tók Birmingham þó aðeins fjórar mínútur að jafna leikinn. Varamaðurinn Keith Fahey skoraði fyrst eftir sendingu frá Nikola Zigic og Cameron Jerome jafnaði síðan eftir fyrirgjöf frá Sebastian Larsson. Stoke-menn tryggðu sér hinsvegar öll þrjú stigin á 85. mínútu þegar Dean Whitehead skoraði eftir sendingu Matthew Etherington og klaufagang í vörn Birmingham. Þetta var fyrsta mark Whitehead í þrjú ár og í 85 leikjum. Eiður Smári Guðjohnsen kom ekki við sögu hjá Stoke og er þetta þriðji leikurinn í röð þar sem hann annaðhvort situr á bekknum allan tímann eða að hann er ekki leikmannahópnum hjá Tony Pulis. Stoke vann þarna sinn fyrsta deildarleik síðan 2. október (1-0 á Blackburn) en liðið komst með honum upp í 15. sæti deildarinnar og fór upp fyrir Birmingham.
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira