Enski boltinn

Kuyt gæti spilað um helgina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Svo gæti farið að Dirk Kuyt spili með Liverpool gegn Chelsea þegar að liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Kuyt meiddist á ökkla í leik með hollenska landsliðinu fyrir þremur vikum síðan en endurhæfingin hefur tekið styttri tíma en búist var við.

„Ég hef lagt mikið á mig undanfarnar vikur með læknum félagsins. Ég er ánægður með batann og get byrjað að æfa aftur á morgun [í dag]," sagði Kuyt í samtali við enska fjölmiðla í gær.

Hann segir að það muni ráðast í dag eða á morgun hvort hann geti spilað gegn Chelsea á sunnudaginn. „Vonandi gengur mér vel á æfingunni en það er stjórinn sem þarf að taka lokaákvörðun um það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×