Ég kýldi Sir Alex Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. nóvember 2010 16:15 Alex Ferguson var áður knattspyrnustjóri Aberdeen. Nordic Photos / Getty Images
Fyrrverandi leikmaður Aberdeen, Skotinn Frank McDougall, hefur greint frá því í nýrri ævisögu að hann kýldi eitt sinn Sir Alex Ferguson, þáverandi stjóra liðsins. Ferguson er frægur fyrir að láta leikmenn heyra það þegar hann er ósáttur en í þetta sinn fékk hann sjálfur að kenna á afleiðingunum. Forsaga málsins er sú að McDougall sagði fyrir bikarleik með Aberdeen árið 1985 að hann væri heill heilsu og setti Ferguson hann í byrjunarliðið. En McDougall var í raun meiddur og skipti Ferguson honum af velli eftir aðeins nokkrar mínútur. Ferguson hellti sér svo yfir hann á æfingu degi síðar. „Ég bar mikla virðingu fyrir Fergie en hafði lært löngu áður að í slíkum aðstæðum lætur maður til sín taka og spyr svo spurninga síðar," segir í ævisögunni. „Það var það sem ég gerði. Þetta var ekkert rothögg en ég hæfði hann í andlitið og hann féll í jörðina. Af öllu því heimskulega sem ég hef gert í gegnum tíðina er ekkert sem toppar þetta." Ferguson var þó fljótur að rísa aftur á fætur og svara fyrir sig. Hann lét henda McDougall af æfingasvæðinu. Þeir voru þó fljótir að sættast og ritar Ferguson meira að segja kafla í bókina þar sem hann lofar sinn gamla lærisvein. McDougall neyddist þó til að leggja skóna á hilluna aðeins 29 ára gamall vegna bakmeiðsla en skoraði alls 104 mörk í 207 leikjum með Aberdeen, St. Mirren og Clydebank á ferlinum.
Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Strákarnir sitja fastir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Modric skammast sín Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira