Innlent

Gagnrýnir Jón Gnarr fyrir að taka ekki þátt í umræðum

Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi
Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri-grænna segir Jón Gnarr borgarstjóra virða borgarstjórn að vettugi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hún sendi fjölmiðlum nú í kvöld.

Hún segir að á borgarstjórnarfundi í dag hafi aðgerðaráætlun og forgangsröðun í fjárhagsáætlun borgarinnar. „Nú þegar langt er liðið á haustið hafa enn engar pólitískar áherslur komið fram af hálfu meirihluta Besta flokks og Samfylkingar og þrátt fyrir margítrekaðar spurningar fengust engin svör um hvort eða hvernig forgangsröðunin færi fram." Vegna þess séu spurningum um gjaldskrárhækkanir, skattahækkanir, uppsagnir og/eða þjónustuskerðingu enn ósvarað.

Hún segir það hafa vakið athygli að Jón Gnarr borgarstjóri hafi ekki tekið til máls í umræðunum, þó ábyrgðin á undirbúningi sé hans. „Það er fordæmalaust með öllu að borgarstjóri virði ekki borgarfulltrúa svara á fundum borgarstjórnar og vart til marks um að kjörtímabilið verði farsælt undir hans forystu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×