Wenger: Þurfum að sýna að við séum tilbúnir í titilbaráttu Elvar Geir Magnússon skrifar 13. desember 2010 10:00 „
Við höfum unnið fleiri leiki og munum sækja til sigurs í þessum leik," segir Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, fyrir stórleikinn gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. „Við höfum verið að byggja upp gott lið og nú er tækifærið fyrir okkur að sýna að við séum tilbúnir að berjast um titilinn. Við vitum að við þurfum að sanna fyrir fólki að við séum klárir í stóru leikina," segir Wenger. „Þetta er enginn úrslitaleikur en þó geta úrslitin haft sálfræðileg áhrif það sem eftir er tímabilsins." Það eru fleiri stórleikir framundan hjá Arsenal en liðið mætir Chelsea milli jóla og nýárs. Veikasti hlekkur Arsenal er klárlega varnarleikurinn en Wenger er þó bjartsýnn fyrir framhaldið. „Leikurinn í kvöld gæti orðið vendipunktur á tímabilinu og við erum meðvitaðir um það. Varnarlega teljumst við ekki nægilega sterkir en við höfum tækifæri á að afsanna það núna," segir Wenger. Stóra spurningin er hvort Cesc Fabregas verði með Arsenal. Wenger hefur sagt harla litlar líkur á að Fabregas verði með en reynslan segir manni að það megi búast við öllu. Samir Nasri verður allavega á sínum stað en hann hefur verið sjóðheitur. The Sun segir frá því að Pólverjinn tvítugi Wojciech Szczesny gæti staðið í markinu hjá Arsenal í kvöld en hann er þriðji markvörður liðsins. Lukasz Fabianski og Manuel Almunia eru báðir tæpir en þó líklegra en ekki að annar hvor þeirra standi í ramminum.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Hadjar frá í aðra keppni Formúla 1 Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira