Geðveikur eða ekki: Slátraði geðlækninum og blés fingurkossa 18. október 2010 22:37 David Tarloff, saxaði geðlækninn og blés fingurkossa út í loftið.
Dómari ómerkti réttarhald yfir David Tarloff í dag en hann er grunaður um að hafa myrt geðlækninn sinn í New York árið 2008. Málið hefur vakið talsverða athygli en hart er deilt um það hvort Tarloff sé í raun geðveikur. Sálfræðingar höfðu komist að þeirri niðurstöðu að hann væri ekki of andlega vanheill til þess að sitja réttarhaldið vegna hrottalegs morðs sem hann játar reyndar að hafa framið. Þá myrti hann geðlækninn Kathryn Faughey á skrifstofu sinni með kjötsaxi. Morðið var hrottalegt. Margt benti til þess að Tarloff væri haldinn ofsóknaræði og geðklofa. Tarloff mætti hinsvegar vígreifur til réttarhaldanna í dag og gaf dómaranum fingurkoss auk þess sem hann greip út í tómt loftið líkt og hann væri að veiða flugur. Svo muldraði hann geðveikislega til þess að undirstrika ástand sitt. Lögmaður Tarloffs sagði fyrir rétti að skjólstæðingur sinn væri sannfærður um að kviðdómur, sem hefur ekki enn verið skipaður, myndi finna hann saklausan. Ástæðan væri þó ekki sú að hann væri raunverulega saklaus, heldur ætlaði guð að fara inn í huga kviðdómendanna og koma þar fyrir hinni réttu sýn á morðmálið. Þess þarf vart að geta að það er Tarloff sjálfur sem segist sjá hlutina með þessum hætti. Þá sagði verjandi Tarloffs að skjólstæðingur sinn hefði hlakkað til réttarhaldanna. Enda sannfærður um að það sé útilokað að kviðdómur finni hann sekann. Áður en hann var færður í réttarsalinn hljóp Tarloff nakinn um ganga fangelsisins. Nú mun saksóknari fá sérfræðinga til þess að kanna andlegt hæfi Tarloffs. Komist hann að sömu niðurstöðu mun málinu verða frestað um óákveðinn tíma, eða þangað til Tarloff jafnar sig og hann verður fundinn nógu andlega heill til þess að sitja eigið réttarhald.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira