Innlent

Aðeins helmingur hlýddi á varnarræðu Ingibjargar

Valur Grettisson skrifar

Um helmingur þingmanna Samfylkingarinnar mættu á óformlegan þingflokksfund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í kvöld samkvæmt kvöldfréttum RÚV. Fundurinn var haldinn í höfuðstöðvum Samfylkingarinnar á Hallveigarstígnum í miðborg Reykjavíkur.

Allir ráðherrar Samfylkingarinnar mættu en svöruðu fáu þegar þeir voru inntir eftir viðbrögðum á RÚV.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði fundinn koma þessu málið eitthvað áleiðis á meðan Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, svaraði stuttaralega þegar hann var spurður hvort hann hefði tekið ákvörðun hvernig hann myndi greiða atkvæði í málinu. Össur svaraði einfaldlega: „Nei."

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra mætti ekki á fundinn þrátt fyrir að honum var einnig boðið. Svo virðist sem ekki hafi verið einhugur um fundinn innan Samfylkingarinnar enda mættu ekki nærrum því allir til þess að hlýða á varnarræðu Ingibjargar.

Össur yfirgaf fundinn áður en honum lauk en hann stendur enn yfir.

Á fundinum var Ingibjörgu veitt tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum áleiðis. Alþingi undirbýr að takast á um tillögu Atlanefndarinnar svokölluðu sem hefur lagt til að Ingibjörg, Björgvin, Geir H. Haarde og Árni M. Mathíesen verði ákærð fyrir afglöp þegar þau gegndu embætti ráðherra í Þingvallastjórninni.


Tengdar fréttir

Þingflokksfundur með Ingibjörg Sólrúnu hafinn

Fundur þingflokks Samfylkingarinnar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, er hafinn. Fundurin er haldinn á skrifstofu Samfylkingarinnar á Hallveigarstígnum og hófst klukkan átta.

Ingibjörg mætir á þingflokksfund klukkan átta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, mun mæta á þingflokksfund Samfylkingarinnar klukkan átta í kvöld. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×