Tevez í Argentínu í nokkra daga til viðbótar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. nóvember 2010 14:15 Carlos Tevez í leik með Manchester City. Nordic Photos / Getty Images
Carlos Tevez verður áfram í Argentínu í einhverja daga til viðbótar en til stóð að hann myndi snúa aftur til Englands í dag. Tevez er á mála hjá Manchester City en hefur verið sagður haldinn slæmri heimþrá. Hann fékk leyfi frá Roberto Mancini, stjóra City, til að fara heim til Argentínu í síðustu viku til að takast á við „persónuleg vandamál" eins og Mancini orðaði það. Tevez hefur átt við meiðsli að stríða og nú greina enskir fjölmiðlar frá því að Tevez hefði sett sig í samband við Mancini og beðið um að fá að vera í nokkra daga til viðbótar ytra. Læknar þar hafi lagt að honum að vera frekar undir eftirliti þeirra næstu daga og að ekki væri ráðlagt að fara í tíu klukkustunda flugferð til Englands í hans ástandi. Mancini sagði á föstudaginn síðastliðinn að hann hefði ekki áhyggjur af löngum ferðalögum Tevez en nú er ljóst að hann mun ekki snúa aftur fyrr en á fimmtudaginn, í fyrsta lagi. Óvíst er hvort hann geti spilað með City gegn West Brom um helgina og í grannaslagnum við Manchester United á miðvikudaginn í næstu viku. Síðustu vikur hafa verið erfiðar fyrir Mancini en hann er sagður hafa misst stjórn á leikmönnum sínum. Í síðustu viku bárust fregnir af því að nokkrir leikmanna City, þeir Gareth Barry, Joe Hart, Shay Given og Adam Johnson, hafi farið á fyllerí í Skotlandi og bað sá fyrstnefndi Mancini opinberrar afsökunar á því. City tapaði fyrir Wolves í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira