Enski boltinn

Evra: Ekki forgangsatriði að vinna City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Patrice Evra, leikmaður Manchester United, segir að það væri ekkert sérstakt við það að vinna Manchester City í leik liðanna á morgun.

„Ef við vinnum þá væri það vissulega góð úrslit fyrir okkur. En það væri eðlilegt fyrir United og ekkert sérstakt," sagði Evra.

„Við þurfum að vinna hvern einasta leik í deildinni - ekki bara gegn City. Við ætlum okkur að vinna ensku úrvalsdeildina."

„Þegar tímabilið hefst þá viljum við vinna alla þá leiki sem við förum í. Það væri auðvitað skemmtilegt að vinna City vegna þess að þetta er sérstakur leikur. Þetta er grannaslagur og allir vilja vinna slíka leiki."

„En það er ekki forgangsatriði hjá okkur. Það er í forgangi hjá okkur að vinna deildina en við þurfum að passa að við töpum ekki þessum leik."

Mikið hefur verið rætt um þennan leik í enskum fjölmiðlum og leikmenn hafa verið duglegir að skiptast á skotum í fjölmiðlum.

„Þeir eru duglegir að segja að þeir séu stærri en við en samt vinna þeir okkur aldrei," sagði Evra enn fremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×