Balotelli skoraði tvö og fékk að líta rautt í sigri City Jón Júlíus Karlsson skrifar 7. nóvember 2010 16:50 Hetjann og skúrkurinn Bolatelli Getty Images
Ítalinn Mario Balotelli var heldur betur í sviðsljósinu á Hawthorns vellinum, heimavelli West Brom, þegar milljarðalið Manchester City hafði betur gegn West Brom, 0-2. Carlos Tevez var óvænt í byrjunarliði City og lagði upp fyrsta markið sem Balotelli skoraði á 20. mínútu. Balotelli var aftur á ferðinni þegar hann skoraði glæsilega framhjá Scott Carson í marki West Brom á 26. mínútu. Staðan í hálfleik var 0-2 fyrir City sem voru með tögl og halgdir á leiknum. Balotelli sýndi í síðari hálfleik hvers vegna hann er talinn vandræðagemsi. Hann fékk að líta beint rautt spjald þegar hann sparkaði í áttina að Youssuf Mulumbu á 63. mínútu. Mulumbo fékk svo sjálfur að líta rauða spjaldið þegar hann straujaði Tevez niður á 82. mínútu. Mörkin hjá Bolatelli í fyrri hálfleik reyndust hins vegar nóg til að innbyrða sigurinn sem skýtur City upp að hlið Arsenal í 4. sæti með 20 stig. West Brom er í 9. sæti með 15 stig. West Brom 0-2 Man City 0-1 Mario Balotelli (20.) 0-2 Mario Balotelli (26.)Rautt: Mario Balotelli (63.) og Youssuf Mulumbu (82.)West Brom: Carson, Shorey, Tamas, Pablo, Cech, Mulumbu, Scharner, Brunt, Cox, Thomas, Fortune.Varamenn: Myhill, Tchoyi, Barnes, Miller, Reid, Dorrans, Odemwingie.Man City: Hart, Zabaleta, Toure, Kompany, Boateng, De Jong, Barry, Toure Yaya, Silva, Tevez, Balotelli.Varamenn: Given, Richards, Milner, Adebayor, Adam Johnson, Kolarov, Vieira.
Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Liverpool - Newcastle | Harður slagur á Anfield Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Sjá meira