Erlent

G8 hópurinn þrýstir á Írana

Clinton í Quebec.
Clinton í Quebec.

Utanríkisráðherrar G8 hópsins, sem samanstendur af öflugustu iðnríkjum heims, hittust á fundi í dag þar sem áform Írana í kjarnorkumálum voru eitt aðal umræðuefnið. Eftir fundinn skoruðu ráðherrararnir á alþjóða samfélagið að taka „viðeigandi" skref til þess að sýna samstöðu gegn kjarnorkuáformum Írans. Stjórnvöld í Íran hafa hins vegar ávallt haldið því fram að áætlun landsins sé eingöngu í friðsömum tilgangi.

Vestrænu þjóðirnar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vilja að enn verði hert á viðskiptaþvingunum gegn Írönum, sem þær gruna um að reyna að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Kína, sem á fast sæti í ráðinu, hefur hingað til komið í veg fyrir frekari þvinganir en diplómatar segja að þolinmæði þeirra hafi minnkað síðustu misserin.

„Ég held að við séum að þokast áfram í málinu," segir Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Fleiri og fleiri þjóðir, þar á meðal Kína, eru að átta sig betur á afleiðingum þess að Íran komi sér upp kjarnavopnum," sagði Clinton við lok fundarins sem fram fór í Quebec í Kanada.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×