Carlo Ancelotti ætlar ekki að biðja Roman Abramovich, stjóra Chelsea, um að opna budduna þegar að félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Talið var líklegt að Ancelotti myndi kaupa varnarmenn í janúar vegna meiðsla þeirra John Terry og Alex. En hann telur að leikmannahópurinn sé nægilega sterkur eins og hann er í dag.
Chelsea mætir í dag Newcastle en liðið hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum og missti fyrr í dag Arsenal og Manchester United fyrir ofan sig.
„Það eru engir leikmenn í langtímameiðslum," sagði Ancelotti við enska fjölmiðla. „Við þurfum ekki á öðrum leikmönnum að halda í janúar."
„Við þurfum að skoða mál þeirra Alex, Terry og Lampard. Ef staða þeirra versnar ekki þurfum við ekki að kaupa í janúar."
Ancelotti neitaði því að það hafi verið mistök að leyfa Ricardo Carvalho að fara til Real Madrid í sumar.
„Carvalho vildi fara og við viljum ekki halda leikmönnum sem ekki vilja vera áfram."
Ancelotti ekki að hugsa um að kaupa í janúar
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mest lesið


Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn


Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn

Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti




