Enski boltinn

Chelsea á eftir Phil Jones

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Chelsea telur sig hafa fundið eftirmann John Terry í Phil Jones, leikmanni Blackburn. Jones hefur vakið athygli margra liða fyrir frammistöðu sína með liðinu.

Jones er aðeins átján ára gamall en er þegar byrjaður að spila með enska U-21 landsliðinu sem fer á EM í Danmörku í sumar, rétt eins og íslenska liðið.

Blackburn er sagt vilja fá tíu milljónir punda fyrir Jones en ekki þykir útilokað að Chelsea muni leggja fram tilboð í kappann í janúar næstkomandi.

Jones hefur einnig verið orðaður við bæði Arsenal og Manchester United. Þá er Manchester City einnig búið að sýna áhuga.

Framtíð Jones gæti einnig ráðist af því hvað nýir eigendur félagsins, indverska fjárfestingafélagið VH Group, vilja gera og hvort þeir hafi efni á því að hafna risaboði frá einu stóru félaganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×