Íbúar flúðu í ofboði 24. nóvember 2010 03:00 Lee Myung-bak, forseti Suður-Kóreu, í svörtum leðurjakka á fundi herráðs landsins í höfuðborginni Seúl.fréttablaðið/AP
Bandaríkin fordæmdu árás Norður-Kóreumanna í gær. Robert Gibbs, blaðafulltrúi Hvíta hússins, skoraði á Norður-Kóreu að láta af árásum og sagði Bandaríkin staðráðin í að verja Suður-Kóreu. Bandaríkin eru með nærri 30 þúsund hermenn í Suður-Kóreu. Catherine Ashton, utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, fordæmdi sömuleiðis árás Norður-Kóreumanna og hvatti þá til að halda meira en hálfrar aldar gamalt vopnahlé ríkjanna. Kínversk stjórnvöld, sem lengi hafa stutt við bakið á Norður-Kóreu en eiga einnig í nánum viðskiptatengslum við Suður-Kóreu, hvöttu bæði ríkin til að halda ró sinni og „leggja meira af mörkum við að tryggja frið og stöðugleika á Kóreuskaga,“ að því er Hong Lei, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði. Íbúar á eyjunni Yeonpyeong fylltust skelfingu þegar árásirnar hófust skyndilega um hálfþrjú síðdegis að staðartíma. „Ég hélt ég myndi deyja,“ sagði Lee Chun-ok, sem sagðist hafa verið að horfa á sjónvarpið heima hjá sér þegar sprengjurnar tóku að falla. Veggur hjá henni hrundi og þá forðaði hún sér frá eyjunni yfir til meginlands Suður-Kóreu ásamt fleiri eyjarskeggjum.- gb
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira