Grétar skoraði í sigri Bolton á Tottenham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. nóvember 2010 14:40 Younes Kaboul og Matt Taylor berjast um boltann í dag. Nordic Photos / Getty Images
Grétar Rafn Steinsson skoraði eitt marka Bolton í 4-2 sigri á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Grétar Rafn og félagar gerðu sér lítið fyrir og skelltu Tottenham á jörðina eftir frábæran 3-1 sigur síðarnefnda liðsins á Evrópumeisturum Inter fyrr í vikunni. Tottenham var langt frá sínu besta lengst af í leiknum og hinn sjóðheiti Gareth Bale var haldið niðri af Grétari Rafni. Kevin Davies kom Bolton yfir með marki á 31. mínútu eftir sendingu Fabrice Muamba sem stal boltanum af Brasilíumanninum Sandro. Grétar Rafn skoraði svo annað markið snemma í síðari hálfleik með föstu skoti í teignum. Johan Elmander átti sendinguna á hann og tók Grétar eina snertingu áður en hann negldi knettinum í markhornið fjær. Davies virtist svo hafa innsiglað sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 76. mínútu eftir að Benoit Assou-Ekotto braut á Chung-Yong Lee. En þá komu tvö mörk frá Tottenham undir lok leiksins. Fyrst náði Alan Hutton að minnka muninn fyrir Tottenham stuttu síðar með laglegu skoti og Roman Pavlyuchenko skoraði svo glæsilegt mark með þrumuskoti úr þröngu færi. Tottenham reyndi að ná jöfnunarmarkinu en á 94. mínútu slapp Martin Petrov inn fyrir vörn liðsins og tryggði sínum mönnum endanlega sigurinn. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur aldrei unnið á Reebok-vellinum og það breyttist ekki í dag.
Mest lesið Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira