Enski boltinn

Malouda gæti náð leiknum gegn Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Florent Malouda í leik með Chelsea.
Florent Malouda í leik með Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Allar líkur eru á því að Florent Malouda geti spilað með Chelsea gegn Liverpool á morgun en Frank Lampard verður ekki með þeim bláklæddu.

Lampard hefur verið frá vegna meiðsla allt tímabilið en hann hafði vonast til að geta spilað gegn Liverpool á morgun. „Hann verður tilbúinn í næstu viku," sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea. „Við viljum taka þann tíma sem hann þarf og ætlum ekki að taka neina óþarfa áhættu. Hann verður orðinn tilbúinn fyrir leikinn gegn Sunderland."

Malouda meiddist á ökkla en bati hans hefur verið skjótari en í fyrstu var talið. Það mun koma í ljós þegar nær dregur leik hvort hann geti spilað.

Ancelotti hefur verið óhræddur við að tilkynna byrjunarlið sín á blaðamannafundum. „Ég get gefið ykkur níu nöfn," sagði hann þegar hann var spurður um byrjunarliðið en óvíst er hvort Michael Essien geti spilað.

„Cech, Ivanovic, Alex, Terry, Cole, Mikel, Zhirkov, Anelka og Drogba. Svo Malouda eða Kalou, Essien eða Ramires."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×