Netsamband landsins rofið 6. nóvember 2010 05:00 Herforingjastjórnin í Búrma hefur haldið Aung San Suu Kyi í stofufangelsi undanfarin ár. Nordicphotos/AFP
Allt netsamband við Búrma rofnaði í gær, þegar álagsárás á tölvukerfi landsins virtist ná hámarki. Tímasetning árásarinnar þykir engin tilviljun, en kosið er í landinu á morgun. Álagsárásir eru gerðar til að valda truflunum á netsambandi. Tölvuþrjótar nota þúsundir tölva víða um heim sem þeir hafa náð stjórn á til að fara inn á vefsvæði á sama tíma. Þoli vefsvæðið ekki álagið ná engar tölvur sambandi við það. Árásir á netkerfi Búrma hafa staðið yfir síðustu daga, en árásin náði áður óþekktum hæðum í gær. Álagið var margfalt meira en það sem netþjónar í Búrma réðu við, og raunar meira en mælst hefur í sambærilegum árásum. Afleiðingarnar urðu þær að netsambandið rofnaði algerlega. Kosningar eru í Búrma á morgun, þær fyrstu í tuttugu ár. Herforingjastjórnin í landinu hefur verið harðlega gagnrýnd vegna fyrirkomulags kosninganna. Í kosningum árið 1990 vann flokkur Aung San Suu Kyi stórsigur, en herforingjastjórnin neitaði að láta af völdum og hneppti Suu Kyi í stofufangelsi, sem hún situr í enn í dag.- bj
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira