James Blunt neitaði að ráðast á Rússa Óli Tynes skrifar 15. nóvember 2010 08:07 James Blunt.
Breski söngvarinn James Blunt hefur skýrt frá því að hann hafi árið 1999 neitað að gera árás á Rússneska hermenn sem höfðu lagt undir sig flugvöllinn í Pristina, höfuðborg Kosovos. Blunt var á þessum tíma liðsforingi í breska hernum. Mikil ringulreið var í Kosovo fyrst eftir að NATO sendi þangað landsveitir. Breskum herflokki hafi verið fyrirskipað að hertaka flugvöllinn í höfuðborginni, en þegar hann kom þar að höfðu um 200 rússneskir hermenn lagt hann undir sig. Bandaríski hershöfðinginn Wesley Clark var æðsti yfirmaður NATO hersins í Kosovo og hann gaf skipun um að völlurinn skyldi tekinn af Rússum. Í viðtali við BBC í gær skýrði Blunt frá því að sveit hans hefði verið komin alveg að flugvellinum. Rússar hefðu staðið var fyrir og beint byssum sínum í átt til þeirra. Sér hefði ekkert litist á blikuna þegar hann fékk beina skipun um að taka völlinn af Rússum. Hann kvaðst hafa heyrt talstöðvarsamskipti og þar hefðu verið notuð sterk orð eins og destroy, eða eyðileggja. Blunt segir að hann hafi talið sig sjá fram á mikinn bardaga og ekki dottið í hug að ráðast á Rússana. Sem betur fer hafi svo yfirmaður bresku hersveitanna Mike Jackson skorist í leikinn. Hann hafi sagt orðrétt við Clark; Ég ætla ekki að láta mína hermenn hefja þriðju heimsstyrjöldina. Jackson skipaði svo bresku hermönnunum að taka það rólega og taka sér stöðu umhverfis flugvöllinn. Eftir nokkra daga hafi Rússarnir verið búnir með birgðir sínar. Þá hafi þeir rölt yfir til Bretanna og spurt hvort þeir gætu ekki bara deilt með sér flugvellinum. Bretarnir jánkuðu því glaðlega og hættan var liðin hjá.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira