Geimtíkin Laika hlaut ömurlegan dauðdaga Óli Tynes skrifar 5. október 2010 11:24 Laika í geimfarinu.
Rússneska tíkin Laika varð heimsfræg árið 1957 þegar hún varð fyrsta lífveran sem send var á braut um jörðu í geimfarinu Sputnik 2. Aldrei var gert ráð fyrir að hún slyppi lifandi úr þeirri ferð, þar sem geimfarið myndi brenna upp þegar það kæmi aftur inn í gufuhvolfið. Rússar héldu því lengi fram að hún hefði verið svæfð áður en súrefni hennar þraut. Danskur sagnfræðingur þykist nú hafa komist að hinu sanna. Anne-Mette Hansen segir að nemar sem settir voru á Laiku hafi sýnt að hjartsláttur hennar þrefaldaðist í flugtakinu. Síðan jókst hiti og raki í geimfarinu og eftir sjö klukkustundir var ekkert lífsmark með tíkinni. Hún drapst úr hræðslu og ofhitnun. Sputnik 2 fór 2.570 hringi umhverfis jörðu en brann upp þegar hann kom inn í gufuhvolfið 14. apríl árið 1958. Í athugasemdum við frétt um þetta í danska blaðinu BT segir að þetta hafi fyrir löngu komið fram. Uppfletting í Google sýnir að það er rétt. En þetta er þó nýr fróðleiksmoli fyrir þá sem ekki hafa heyrt þetta áður. Bæði Bandaríkjamenn og Rússar höfðu sent dýr út í geiminn fyrir ferð Laiku og þau komu flest lifandi til baka. Frægð Laiku byggðist á því að vera fyrsta lífveran sem fór á braut um jörðu. Eins og við var að búast var mikil og heit umræða um siðferði þess að senda dýr út í geiminn.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira