Pulis hrósar Eið Smára - ætlar að nota hann á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2010 19:30 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Nordic Photos/Getty
Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur ekki notað Eið Smára Guðjohnsen í síðustu sex leikjum liðsins en stjórinn hefur nú fullvissað íslenska landsliðsmanninn að hann hafi hlutverk handa honum í Stoke-liðinu á þessari leiktíð. Eiður Smári kom síðast við sögu hjá Stoke þegar hann kom inn á sem varamaður á 57. mínútu í 3-1 tapi fyrir west Ham í enska deildarbikarnum 27. október síðastliðinn. Það eru því liðnir 36 dagar síðan Eiður Smári spilaði fyrir Stoke. „Eiður missti af undirbúningstímabilinu og það hefur verið mikið í gangi á bak við tjöldin. Eiður þarf meiri tíma en ég hef enn trú á því að hann spili hlutverk hjá liðinu á þessu tímabili," sagði Tony Pulis.Eiður Smári Guðjohnsen og Kenwyne Jones.Mynd/Nordic Photos/Getty„Eiður er búinn að vera frábær síðan að hann kom. Hann er góður í hóp og kemur vel saman við aðra leikmenn í liðinu. Ástæðan fyrir því að hann er ekki búinn að spila er að Ricardo Fuller er búinn að vera frábær, þeir Kenwyne Jones og Tuncay hafa spilað vel og Jon Walters er búiinn að standa sig betur en allir áttu von á," sagði Pulis. „Ef þessir leikmenn hefðu ekki staðið sig svona vel þá hefði Eiður fengið fleiri tækifæri. Það er mikil samkeppni í liðinu eins og á að vera í góðu úrvalsdeildarliði og Eiður verður að sætta sig við það," sagði Pulis. Pulis segir að Eiður Smári verði að bíða þolinmóður eftir sínu tækifæri alveg eins og markvörðurinn Asmir Begovic. „Hann þarf að fá nokkra leiki í röð og tækifæri til að spila reglulega alveg eins og staðan var fyrir Asmir Begovic á sínum tíma. Asmir var vonsvikinn með fá tækifæri sem hann fékk í fyrstu en svo fékk hann tækifærið, nýtti það vel og nú staðan hans," sagði Pulis.Eiður Smári í leik með landsliðinu á móti Portúgal.Mynd/VilhelmEiður Smári hefur komið inn á sem varamaður í fimm leikjum á tímabilinu en hefur ekki enn fengið tækifæri í byrjunarliðinu þrátt fyrir að það sé komið fram í desember.Eiður Smári hefur spilaði í 131 mínútu í Stoke-búningnum, 69 mínútur í ensku úrvalsdeildinni og í 62 mínútur í enska deildarbikarnum. Eiður Smári hefur sem dæmi spilað í 154 mínútur með íslenska landsliðinu á tímabilinu.
Mest lesið Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti EM-Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands gegn Danmörku Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti Danmörk - Ísland | Undanúrslit í gini ljónsins Handbolti „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Handbolti „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira