Erlent

Litla hafmeyjan send til Kína

Styttan af Litlu hafmeyjunni flutt.
Styttan af Litlu hafmeyjunni flutt. Mynd/AFP
Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn var í dag send til Shanghai í Kína. Þar verður styttan, sem verður hundruð ára eftir þrjú ár, komið fyrir í skála Danmerkur á heimssýningunni Expo 2010. Alls verður styttan utan Danmerkur í átta mánuði.

Ekki voru allir á eitt sáttir með þá ákvörðun yfirvalda að flytja styttuna til Kína. Einkum og sér í lagi þar sem innan skamms hefst aðal ferðamannatímabilið og von er á fjölmörgum ferðamönnum til Kaupmannahafnar sem nú geta ekki séð eitt helsta kennileiti borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×