Innlent

Ölvuð og próflaus kona ók á átta ára dreng

Ekið var á átta ára dreng í Suðurhólum, við Vesturhóla í Breiðholtinu, um kvöldmatarleytið í kvöld. Ökumaðurinn, kona á þrítugsaldri, var réttindalaus og ölvuð.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var konan ekki eigandi bílsins heldur með hann í láni frá vinkonu sinni. Eigandinn mætti á staðinn stuttu eftir að atvikið átti sér stað og ætlaði að taka á sig sökina. Ökumaðurinn slapp þó ekki með skrekkinn og var færð á lögreglustöðina þar sem hún mun dúsa í nótt. Henni verður líklega sleppt að lokinni yfirheyrslu á morgun.

Drengurinn slasaðist fæti og var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans. Hann fékk þó að fara heim að lokinni skoðun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×