Enski boltinn

Carroll sagður hafa verið í kynsvalli heima hjá Nolan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carroll og Nolan.
Carroll og Nolan. Nordic Photos / Getty Images

Þeir Andy Carroll og Kevin Nolan, leikmenn Newcastle, voru á forsíðum ensku blaðanna í morgun vegna meints kynsvalls heima hjá Nolan um síðustu helgi.

Carroll hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarna vikur og mánuði eftir að hann var sakaður um að hafa ráðist á fyrrverandi kærustu sína. Carroll var handtekinn en sleppt úr haldi, til að mynda gegn því að hann myndi dvelja á heimili Nolan um tíma.

Um síðustu helgi vann Newcastle 5-1 sigur á grönnum sínum í Sunderland. Leikmenn fögnuðu sigrinum með því að fara út á lífið um kvöldið.

Það mun hafa endað með því að nokkrir leikmenn fóru heim til Nolan en fjölskylda hans var ekki heima. Þar mun Carroll hafa sængað hjá tveimur konum, á meðan hann var klæddur kattarbúningi.

Þá mun einnig hafa fundist kókaín á stofuborði Nolan en leikmenn eru ekki grunaðir um neyslu eiturlyfja. Þeir félagar munu vera að íhuga að tilkynna atvikið til lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×