Frækinn sigur Newcastle gegn Arsenal á Emirates Jón Júlíus Karlsson skrifar 7. nóvember 2010 15:33 Andy Carroll skoraði í dag Getty Images
Newcastle vann frækinn sigur á Arsenal, 0-1, á Emirates vellinum í dag og kemst fyrir vikið upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Arsenal voru miklu mun betri í leiknum en náðu ekki að skapa sér mörg færi gegn sterki vörn nýliðanna. Ekki var mikið um markfæri í fyrri hálfleik þó heimamenn í Arsenal væru mun sterkari og líklegri. Tim Krul þurfti að taka á honum stóra sínum þegar hann varði skot Samir Nasri af stuttu færi meistaralega. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins þegar vandræðagemsinn Andy Carroll skoraði með góðum skalla í uppbótatíma í fyrri hálfleik. Lukasz Fabianski, markvörður Arsenal, hefði e.t.v. átt að gera betur. Arsenal fengu fá góð færi í síðari hálfleik og til að bæta gráu ofan á svart þá fékk Laurent Koscielny, varnarmaður Arsenal, að líta rauða spjaldið í uppbótatíma þegar hann reif niður Nile Ranger sem var við það að sleppa einn í gegnum vörn Arsenal. Þetta er í annað sinn sem Koscielny lítur rauða spjaldið í ensku deildinni í vetur. Arsenal er í 3. sæti með 20 stig eftir 11 leiki og er fimm stigum á eftir Chelsea sem eiga leik gegn Liverpool seinna í dag. Newcastle er hins vegar með 17 stig í fjórða sæti deildarinnar og var þetta þriðji sigurleikur þeirra svarthvítu í röð í deildinni. Arsenal 0-1 Newcastle 0-1 Andy Carroll (45.) Byrjunarlið Arsenal: Fabianski, Sagna, Koscielny, Squillaci, Clichy, Song, Wilshere, Fabregas, Walcott, Chamakh, Nasri.Varamenn: Szczesny, Rosicky, van Persie, Djourou, Arshavin, Eboue, Bendtner.Byrjujnarlið Newcastle: Krul, Simpson, Coloccini, Williamson, Jose Enrique, Barton, Tiote, Nolan, Gutierrez, Carroll, Ameobi.Varamenn: Soderberg, Campbell, Routledge, Lovenkrands, Smith, Steven Taylor, Ranger.
Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Vissu ekki að hún hefði skipt um landslið Sport Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Eiginkonan gaf Messi strumpaköku í afmælisgjöf Fótbolti Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ Körfubolti Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Fótbolti Átján ára gömul og að verða launahæst í sænsku deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Sjá meira