Bale ætlar að klára samninginn við Tottenham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. nóvember 2010 13:45 Nordic Photos / Getty Images
Gareth Bale, leikmaður Tottenham, segir að hann ætli ekki að fara frá félaginu áður en samningur hans rennur út árið 2014. Bale hefur slegið í gegn á leiktíðinni og var frábær í tveimur leikjum Tottenham gegn Evrópumeisturum Inter í Meistaradeild Evrópu. Tottenham vann Inter á þriðjudaginn, 3-1. „Ég vil vera áfram í Tottenham og njóta þess að spila knattspyrnu. Ég nýt þess að spila með Tottenham og hlakka til framtíðarinnar." Bale hefur verið orðaður við mörg stórlið að undanförnu, til að mynda Real Madrid og Barcelona. Hann gekk til liðs við Tottenham frá Southampton árið 2007. „Ég skil ekki þetta fár í kringum mig og finnst þetta nokkuð fjarstæðukennt," sagði Bale. „En allir knattspyrnumenn vita að þetta fylgir velgengni og þetta er vissulega nokkuð ánægjulegt." Bale fór illa með Brasilíumanninn Maicon í leiknum gegn Inter á þriðjudagskvöldið og stakk hann ítrekað af. En hann segist þó ekki vera sá fótfráasti í boltanum. „Theo Walcott er fljótari en ég. Við vorum herbergisfélagar þegar við vorum saman hjá Southampton og hann er án nokkurs vafa fljótari en ég. Við erum enn góðir félagar og ég heyri í honum reglulega."
Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira