Nolan, fyrirliði Newcastle: Leikmennirnir í sjokki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2010 09:15 Kevin Nolan, fyrirliði Newcastle. Mynd/Nordic Photos/Getty
Kevin Nolan, fyrirliði Newcastle, segir að leikmenn liðsins séu í sjokki eftir að stjórinn Chris Hughton var rekinn frá félaginu í gær. Hughton þótti ekki nógu reynslumikill stjóri en hann hafði komið liðnu upp í úrvalsdeildina á ný og liðið er sem stendur í 12. sæti í henni. „Chris var niðurbrotinn og það fór ekki fram hjá neinum," sagði Kevin Nolan við The Sun. „Það segir samt mikið um hvern mann hann hefur að geyma að þrátt fyrir að hann væri mjög svekktur með að vera að fara þá gaf hann sér tíma í að segja við mig og Joey [Barton] hvað væri mikilvægt að við ættum gott tímabil," sagði Nolan. „Það var mikil reisn yfir því hvernig hann yfirgaf félagið og hvernig hann bar sig þegar hann var stjóri," sagði Nolan. „Okkur hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að undanförnu en við erum samt um miðja töflu og hann sagði okkur að hann hefði ennþá trú á okkur og væri viss um að við myndum standa okkur vel," sagði Nolan.Chris Hughton.Mynd/Nordic Photos/Getty„Hann kvaddi alla starfsmenn á vellinum og ætlar sér að koma til baka seinna til þess að kveðja leikmennina og óska þeim alls hins besta," sagði Nolan. „Við erum allir ósáttir með að Chris sé farinn. Hann hjálpaði mörgum leikmönnum að koma ferli sínum aftur í gang bæði sem þjálfari og sem stjóri. Það líkaði öllum vel við Chris og hann var vinsæll ekki bara hjá leikmönnunum heldur hjá öllum í félaginu," sagði Nolan. „Við munum aldrei gleyma því þegar við unnum B-deildina á síðasta tímabili og við þurfum að halda áfram að standa saman eins og hann fékk okkur til að gera. Chris byggði upp liðsheildina og hjálpaði félaginu í gegnum erfiða tíma," sagði Nolan.
Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira