Erlent

Stjórnvöld gefa leyfi til að drepa

Stjórnvöld í Kirgistan hafa gefið öryggissveitum landsins leyfi til þess að drepa í tilraun til þess að stöðva uppþot þjóðarbrota í borginni Osh sem hefur tekið nærri áttatíu líf.

Örvæntingin er mikil í suðurhluta landsins en í gær óskaði bráðabirgðastjórn þess formlega eftir hernaðaraðstoð Rússa eftir átök í Osh, en um áttatíu eru látnir og 850 særðir eftir þriggja daga uppþot þjóðarbrota.

Bráðabirgðastjórn Kirgistan hefur viðurkennt að hafa misst stjórn á aðstæðum í suðri. Fram kemur í breska dagblaðinu Guardian í dag að Rússar hafi ekki í hyggju að senda herafla til Kirgistan, a.m.k ekki að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×