Ríkisskattstjóri: Getum ekki staðið í því að vera skattaráðgjafi bankanna Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. mars 2010 18:43
Kaupþing banki óskaði ítrekað eftir upplýsingum frá Ríkisskattstjóra um hvernig ætti að skattleggja hagnað vegna afleiðuviðskipta á gjaldeyri en fékk ekki svör. Ríkisskattstjóri segist ekki geta staðið í því að vera einhvers konar skattaráðgjafi bankanna. Með því að senda bréf og endurákvarða skattlagningu á þúsund einstaklinga vegna afleiðuviðskipta upp á hundruð milljarða króna bætist skatturinn í hóp kröfuhafa þessara einstaklinga, en margir þeirra tóku lán fyrir þessum viðskiptum. Stefán Skjaldarson, skattrannsóknarstjóri, segir að einn banki hafi haldið eftir staðgreiðslu vegna afleiðuviðskipta með hlutabréf að hluta til. Hann segir að þetta hafi verið sáralítill hluti af heildarviðskiptum bankanna með þessar afurðir. Um er að ræða Kaupþing banka, en samkvæmt upplýsingum þaðan missti bankinn mikið af viðskiptavinum í afleiðuviðskiptum yfir til bæði Glitnis og Landsbankans þar sem þar var staðgreiðsla vegna þessara viðskipta ekki færð til bókar. Voru viðskiptavinir Kaupþings óhressir með að dreginn var skattur af þeim og færðu sig því annað. Velta má fyrir sér hvers vegna skattrannsóknarstjóri lét hjá líða að rannsaka ekki hina bankana tvo þegar einn banki, Kaupþing, var að skattleggja hluta af afleiðuviðskiptum með hlutabréf. Átti það ekki að kveikja á viðvörunarbjöllum? Stefán segir að almennt hafi ríkt traust um það að menn hafi staðið rétt að málum varðandi skattskil. E.t.v sé það ástæða þess að ekki hafi verið farið út í sérstaka rannsókn á því hvort bankarnir hafi verið að halda eftir staðgreiðslu vegna afleiðuviðskipta. Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi óskaði bankinn sérstaklega eftir því hvernig ætti að skattleggja afleiður með gjaldeyri og fékk ekki skýr svör við því. Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, kannast við þetta og segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu: „Því miður hafa spurningar á stundum verið óskýrar eða settar þannig fram að ríkisskattstjóri væri kominn í hlutverk skattaráðgjafa. Slíkt er ekki verkefni embættisins og slíkum beiðnum er ekki ansað. Í grundvallaratriðum er skattlagning afleiðuviðskipta skýr, sbr. leiðbeiningar RSK bæði útgefnar og í bréfum." Þessi starfsemi virðist hafa haldið áfram að einhverju leyti í bönkunum eftir hrunið. Embætti ríkisskattstjóra gerði athugasemdir við Landsbankann NBI eftir bankahrunið um skattlagningu á afleiðuviðskiptum.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Sjá meira