G20 ríkin ósammála um aðgerðir 13. nóvember 2010 06:00 Barack Obama ásamt Lee Myung-bak, forseta Suður-Kóreu, og Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada. Fréttablaðið/AP
Ekki náðist sátt meðal leiðtoga G20 ríkjanna svokölluðu, tuttugu stærstu hagkerfa heims, um hugmyndir Bandaríkjamanna um að þrýsta á Kínverja að þeir sjái til þess að kínverska júanið styrkist. Leiðtogar ríkjanna funduðu í gær og fyrradag í Seúl í Suður-Kóreu um stöðu alþjóðahagkerfisins. Umræður um ójafnvægi í alþjóðaviðskiptum voru áberandi en margir hafa áhyggjur af þeim gríðarlega mun sem er á viðskiptaafgangi ríkja á borð við Kína og Þýskalands og viðskiptahalla ríkja svo sem Bandaríkjanna. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem gefin var út í lok fundarins og bæði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseti Kína, skrifuðu undir, kom fram áheit um að berjast gegn verndarstefnu auk þess sem búa skyldi til viðmiðunarreglur um viðskiptajöfnuð ríkja. Væru þær reglur hugsaðar sem grundvöllur umræðna um ójafnvægi í alþjóðaviðskiptum. Bandaríkjamenn höfðu í aðdraganda fundarins gagnrýnt kínversk stjórnvöld fyrir að halda gengi kínverska júansins óeðlilega lágu og þar með veita kínverskum fyrirtækjum samkeppnisforskot sem bandarísk fyrirtæki gætu ekki keppt við. Sterkara júan myndi þýða lækkun á viðskiptahalla Bandaríkjanna við Kína en spár benda til þess að hallinn verði 238 milljarðar dollara á þessu ári og hefur hann aldrei verið hærri. - mþl
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Sjá meira