Fréttaskýring: Stjörnustríðsáform verði að veruleika 23. nóvember 2010 06:00 Gægist inn um dyrnar Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti á NATO-fundi í Lissabon. Fréttablaðið/AP
Hvað ætlast leiðtogar NATO fyrir? Rússar hafa sýnt áhuga á þátttöku í eldflaugavarnarkerfi sem leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu á fundi sínum í Lissabon fyrir helgi að sett verði upp í Evrópu. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, lýsti þessu yfir að loknum fundi með Rússum á laugardaginn. Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti tók þó fram að ekkert sé enn ákveðið. „Við tökum þátt á jafnréttisgrundvelli, annars verðum við ekki með,“ sagði hann. Þetta verða að teljast ótvíræð merki þess að þáttaskil hafi orðið í samskiptum Rússa og NATO. Fyrir fáum árum sýndu Rússar því harða andstöðu og töldu sér gróflega ógnað þegar Bandaríkin hugðust, einhliða, koma sér upp slíku kerfi. „Eldflaugavarnir verða hluti af almennri varnarstefnu okkar,“ segir í yfirlýsingu leiðtoganna. Samkvæmt yfirlýsingunni verður byggt á eldflaugavarnakerfinu, sem herlið NATO hafa til þessa notað á bardagasvæðum. Hlutverk þess verður aukið þannig að það verði notað til að „vernda íbúa, landsvæði og herlið“ allra aðildarríkja bandalagsins í Evrópu. Að auki verður eldflaugavarnakerfi það, sem Bandaríkjamenn hyggjast koma á fót í Evrópu, notað til að styrkja eldflaugavarnir NATO í Evrópu. Bandaríkjamenn hafa áratugum saman haft áhuga á að koma sér upp vörnum, sem felast í því að óvinaflugskeyti verði hægt að stöðva áður en þau lenda á skotmarki sínu. Hugmyndin er sú að með hjálp ratsjárkerfa sé hægt að reikna út stefnu og staðsetningu aðvífandi flugskeyta svo hægt verði að senda flugskeyti á móti þeim og sprengja þau áður en þau valda tjóni. Það var Ronald Reagan sem kynnti þessi áform fyrst til sögunnar árið 1983. Þau voru harðlega gagnrýnd og mikið grín gert að þessum stjörnustríðsleik kúrekans í Hvíta húsinu. Bill Clinton hélt áfram að þróa þessar hugmyndir og Bush yngri tók síðan við keflinu. Hann var fyrir fáum árum kominn á fremsta hlunn með að setja upp eldflaugavarnakerfi í Tékklandi og Póllandi. Bandaríkjastjórn féll frá þeim áformum eftir að Barack Obama tók við embætti, en í haust kynnti Obama nýja útfærslu eldflaugavarna í Evrópu, sem gekk út á það að í staðinn fyrir að setja upp slíkar varnir í Tékklandi og Póllandi verða þær hafðar í bandarískum herskipum á Miðjarðarhafi. Þetta væntanlega varnarkerfi Bandaríkjanna verður partur af eldflaugavörnum Atlantshafsbandalagsins í Evrópu. Áherslan er lögð á að sameina aðildarríki NATO og nágrannaríki bandalagsins um sameiginlegar eldflaugavarnir, frekar en að Bandaríkin standi einhliða að verki. „Eldflaugavarnir munu tengja aðildarríkin nánari böndum,“ sagði Anders Fogh á leiðtogafundinum. „Með því að bjóða Rússum að starfa með okkur tel ég að við höfum líka raunhæfa möguleika á að byggja öryggisþak yfir allt Evrópu- og Atlantshafssvæðið.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Sjá meira