Reina: Liverpool verður að styrkja sig til að halda sínum bestu mönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2010 19:30 José Reina, markvörður Liverpool. Mynd/Nordic Photos/Getty
José Reina, markvörður Liverpool, segir að Liverpool sé ekki eins sterkt og Arsenal, Chelsea, Tottenham eða Manchester-félögin. Hann segir að Liverpool eigi þó möguleika á Meistaradeildarsæti en það verður erfitt að gera betur en fyrrnefnd lið í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. „Við verðum að enda tímabilið í betra sæti en við erum í dag (9. sæti) og við verðum að halda áfram að byggja liðið upp næstu árin til þess að vera samkeppnishæfir. Ef það tekst ekki þá verður erfitt fyrir félagið að halda sínum stærstu stjörnum," sagði José Reina við ESPNsoccernet. „Við erum ekki með eins sterkt lið og Man City, Arsenal, Man United, Chelsea eða Tottenham og þess vegna verðum við að styrkja leikmannahópinn á næstunni. Eins og staðan er í dag þá er ómögulegt fyrir okkur að keppa sem dæmi við Chelsea í 9 mánuði. Það viljum við hinsvegar," segir Reina og hann segir að samkeppnin sé alltaf að aukast í ensku úrvalsdeildinni.Jose Reina í leik á móti Stoke.Mynd/AFP„Það eru öll lið í Englandi að byggja upp sterka leikmannahópa og við verðum að gera það sama ef að við ætlum að vera samkeppnishæfir," sagði Reina. Liverpool er sem stendur níu stigum á eftir toppliðum Chelsea og Manchester United og sex stigum á eftir Manchester City sem er í síðasta Meistaradeildarsætinu. „Við eigum möguleika á því að ná einu af efstu fjórum sætunum í vor en til að það takist þá þurfum við að spila betur en að undanförnu. Ef að við spilum ekki betur verður það mjög, mjög, mjög erfitt að tryggja okkur Meistaradeildarasæti," sagði Reina. Liverpool hefur náð í þrettán stig af átján mögulegum í síðustu sex leikjum og Reina hefur haldið hreinu í þremur þeirra.Jose Reina og Rafael Benitez,Mynd/Nordic Photos/Getty„Rafa [Benítez] var elskaður í Liverpool en ég tel að það sé kominn tími á það að stuðningsmennirnir fari að standa að baki Roy og styðja hann hundrað prósent. Ég held að það séu ekki margar gagnrýnisraddir þarna úti hvort sem er," sagði Reina sem hefur haldið alls fimm sinnum hreinu í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu eða í 36 prósent leikjanna.
Mest lesið Danmörk - Ísland 31-28 | Strákarnir okkar spila um bronsið Handbolti Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti Alfreð í úrslitaleikinn eftir sigur á Degi Handbolti „Ég hugsa að þetta sé EM-met“ Handbolti Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport EM-Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands gegn Danmörku Handbolti „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti Sigvaldi verður ekki með í kvöld Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira