Ótti um að harðari átök séu í uppsiglingu 26. nóvember 2010 05:00 Íbúar eyjunnar Yeongpyeong hafa reynt að bjarga því sem bjargað verður úr rústum húsa sinna.nordicphotos/AFP
Kim Tae-young, varnarmálaráðherra Suður-Kóreu, sagði af sér í gær, tveimur dögum eftir harkalega árás Norður-Kóreuhers á eyjuna Yeongpyeong sem kostaði fjóra menn lífið. Lee Myung-pak forseti boðar aukna hernaðaruppbyggingu á eyjunni og sameiginlegar heræfingar með Bandaríkjunum um helgina, en Norður-Kóreumenn ítreka hótanir um fleiri árásir ef þeir telja sér ögrað. Afsögn ráðherrans kom fáeinum klukkustundum eftir að þingmenn í Suður-Kóreu höfðu gagnrýnt stjórnvöld fyrir að hafa ekki verið nógu vel undir árásina búin, og herinn gagnrýndu þeir fyrir of hæg viðbrögð. Átök milli landanna eru nokkuð algeng, en með árásinni á þriðjudag beindu Norður-Kóreumenn í fyrsta sinn vopnum sínum gegn almennum borgurum. Ótti hefur því vaknað um að harðari átök séu í uppsiglingu. Stjórnvöld bæði Suður-Kóreu og Bandaríkjanna hafa skorað á Kínverja að beita áhrifum sínum til að halda aftur af Norður-Kóreu. Í gær ítrekuðu Kínverjar þau hvatningarorð sín til beggja Kóreuríkjanna, um að þau þurfi bæði að halda aftur af sér. Íbúar eyjunnar vörðu deginum í gær til að kanna rústir þeirra húsa, sem eyðilögðust, og tóku með sér þær af eigum sínum sem enn reyndust í þokkalegu horfi. „Þetta var sannkallað eldhaf,“ sagði Lee In-ku, 46 ára verslunareigandi á Yeongpyeong, um árásirnar á þriðjudag. „Mörg húsanna urðu eldi að bráð og margir íbúanna hlupu fram og til baka í algerri óvissu. Þetta var ringulreið.“ Lee forseti segir að hermönnum á Yeongpyeong og fleiri eyjum við markalínuna í Gulahafi verði nú fjölgað, en ekki fækkað smám saman eins og ákvörðun var tekin um fyrir fjórum árum. Hann vildi ekki fara nánar út í þau áform, en sagði að nú væru um fjögur þúsund hermenn á eyjunum. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur staðfest að bandarískt flugmóðurskip muni taka þátt í heræfingum á Gulahafi með her Suður-Kóreu, en þær heræfingar eiga að hefjast á sunnudaginn. Norður-Kórea telur sig eiga tilkall til eyjanna og hafsvæðis á Gulahafi langt sunnan við markalínuna, sem Sameinuðu þjóðirnar tóku ákvörðun um árið 1953, segir til um.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira