Íslenski boltinn

Bjarni þjálfar Stjörnuna áfram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Allar sögusagnir um að Stjarnan ætli sér að skipta Bjarna Jóhannssyni út sem þjálfara dóu í dag þegar Bjarni skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Bjarni hefur verið við stjórnvölinn hjá Garðabæjarliðinu í þrjú ár. Hann fór með liðið upp úr 1. deildinni á sínu fyrsta ár og er smám saman að festa það í sessi í efstu deild.

Mikið var slúðrað um að skipta ætti Bjarna út eftir tímabilið og voru nöfn Loga Ólafssonar og Guðjóns Þórðarsonar áberandi í því sambandi.

Nú er ljóst að þær gróusögur áttu líklega ekki við rök að styðjast því Bjarni verður áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×