„Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Sindri Sverrisson skrifar 6. október 2026 13:02 Aron Pálmarsson var ánægður með það sem hann sá hjá FH í fyrsta leik í Evrópudeildinni. Nú er komið að fyrsta heimaleiknum. vísir/Diego Nýklipptur Aron Pálmarsson stýrir FH í kvöld í fyrsta sinn í heimaleik í Evrópukeppni þegar liðið tekur á móti einu besta liði Frakklands, Limoges, í Evrópudeildinni í handbolta. Ungstirni FH-liðsins sýndu á Spáni í fyrsta leik að þau eru til alls líkleg. „
Þetta er allt annað dæmi en deildarleikir. Mikið stærra og meira allt í kringum þessa leiki og liðin sem við mætum rosalega „professjonal“. Þetta er ákveðin upplifun,“ segir Aron spenntur fyrir kvöldinu en leikur FH og Limoges hefst klukkan 18:45 í Kaplakrika. FH tapaði naumlega gegn Bidasoa á Spáni, 39-37, í síðustu viku á meðan að Limoges vann nauman sigur gegn Marítimo frá Portúgal. Ljóst er að það verður við ramman reip að draga hjá FH-ingum í vetur en Aron bendir á að burtséð frá úrslitum muni keppnin hjálpa leikmönnum mikið til framtíðar. Eftir leikinn á Spáni hefur Brynjar Narfi Arndal, sem skoraði átta mörk, verið talsvert í sviðsljósinu og jafnvel líkt við Lamine Yamal auk þess að vera orðaður við stórlið í Evrópu. Þeir Ómar Darri Sigurgeirsson eru á meðal unglinga FH-liðsins sem fólk fær kannski ekki mörg ár í viðbót til að sjá á Íslandi. „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið þó svo að við vitum að það er fullt, fullt eftir í það að Narfi verði Lamine Yamal eða að Ómar Darri fari í toppklúbb í Evrópu. En þessir gaurar eru með hausinn rétt skrúfaðan, við höldum vel utan um þá og ef þeir halda áfram þeirri vinnu sem þeir leggja í þetta, með fókusinn á réttum stað, þá vonandi verða þetta framtíðarlandsliðsmenn. En við megum ekki gleyma því að þeir eru þetta ungir og fyrir leikmenn á þessum aldri geta sex mánuðir verið mjög langur tími og mikið gerst. Þeir eru á góðri leið, sýna hvað þeir geta og eiga allt hrós skilið en það er áfram hellings vinna framundan,“ segir Aron. Ómar Darri Sigurgeirsson er markahæstur FH í Olís-deildinni í vetur.vísir/Diego Fólk megi búast við óhræddum FH-ingum Hann vonast til að FH-liðið byggi ofan á frammistöðuna í fyrsta leik: „Ég var ekkert smá ánægður með „effortið“ sem okkar ungu strákar sýndu í fyrsta leik. Þeir sýndu að þeir eiga vel heima í þessari keppni en eins og okkar stærsti sonur hér í Krikanum sagði oft þá er „stutt í kúkinn“ þannig að núna er okkar að fylgja þessu eftir. Það er mikil spenna og allt það en ég held að fólk megi alveg búast við óhræddum FH-ingum.“ View this post on Instagram A post shared by FH Handbolti (@fh_handbolti) „Við vorum hundfúlir að hafa tapað á þessum erfiða útivelli [á Spáni], gegn þessu góða liði. Þeir litu þokkalega út sóknarlega en mér fannst við gera þetta helvíti vel sóknarlega hjá okkur. Við stóðum vel í hárinu á þeim og viljum auðvitað sigra í hverjum leik en vitum líka að það er ekki nóg að hafa einhverja taktíska snilld eða slíkt á móti þessum liðum. Það þarf allt að smella en við mætum algjörlega óhræddir og skiljum allt eftir á gólfinu,“ segir Aron meðvitaður um að allt þarf að ganga upp til að vinna lið eins og Limoges í kvöld: „Þetta er auðvitað langskot. Þetta er frábært lið, töluvert líkamlega sterkara en þetta Bidasoa-lið. En ef við ætlum ekki að hafa trú á þessu verkefni þá bætum við okkur ekki. Sama hvernig úrslitin verða þá viljum við fá sem mest út úr þessum leikjum og það er gott fyrir íslensk lið að kynnast svona álagi og öðruvísi aðstæðum.“ Leikur FH og Limoges hefst klukkan 18:45 í Kaplakrika og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
FH Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira