Erlent

Ekkert lát á morðum í Mexíkó

Ekkert lát virðist vera af fréttum um morð í Mexíkó sem tengjast eitulyfjahringjum. Nú síðast voru þrjár manneskjur myrtar í landamæraborginni Ciudad Juarez og tengjast þær ræðisskrifstofu Bandaríkjanna þar í borg. Tvö hinna myrtu voru Bandaríkjamenn, kona sem starfaði á skrifstofunni og eiginmaður hennar. Þá var Mexíkanskur eiginmaður annars starfsmanns einnig drepinn.

Hvíta húsið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og þar segir að Barack Obama forseti sé æfur yfir morðunum. Hann segist ætla að vinna með mexíkönskum yfirvöldum til þess að finna morðingjana. Starfsmönnum ræðisskrifstofa í norður Mexíkó hefur verið ráðlagt að senda fjölskyldur sínar úr landi á meðan öldurnar lægir.

Um 18 þúsund manns hafa látist í átökum glæpagengja í landinu frá árinu 2006.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×