Innlent

Þrír erlendir ferðamenn alvarlega slasaðir

Frá slysstað.
Frá slysstað. Mynd/Einar

Þrír af þeim fimm sem slösuðust, þegar að smárúta valt á Biskupstungnabraut á milli Minni Borgar og Laugarvatnsafleggjara laust fyrir klukkan hálf ellefu í morgun, eru lífshættulega slasaðir. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild.

Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja tvo af slysstað og voru þeir komnir um borð í hana rétt fyrir klukkan hálf tólf í dag. Þeir voru svo fluttir áleiðis á Landspítalann í Reykjavík, einn var var fluttur með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans, tveir í sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Selfossi, hvorugur alvarlega meiddur, og einn slapp ómeiddur.

Ekkert er enn vitað um tildrög slyssins , en veður var þurrt og bjart þegar slysið varð og aðstæður til aksturs allar hinar bestu. Slysið er í rannsókn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×