Elgir valda þúsundum umferðaróhappa í Svíþjóð 22. nóvember 2010 06:54
Svíar telja að fjöldi umferðaróhappa þar sem elgir koma við sögu muni fara yfir 6.000 í ár. Í umfjöllun sænskra fjölmiðla er vitnað í sérstakt villidýraráð sem fylgist með þessum óhöppum og heldur um fjölda þeirra. Samkvæmt ráðinu má rekja hinn mikla fjölda óhappa til þess að elgstofninn er í miklum vexti. Í ár eru þegar skráð 5815 óhöpp miðað við 5769 á sama tímabili í fyrra. Í langflestum tilvikum er um að ræða að keyrt sé á elgina á þjóðvegum og sveitavegum Svíþjóðar. Slíkt er ekki bara lífshættulegt fyrir elgi heldur einnig ökumann og farþega þar sem hver elgur vegur að meðaltali 500 til 700 kíló. Fyrrgreint ráð telur að auka beri veiðar á elgum í Svíþjóð til að minnka stofninn. Svíar veiða nú tæplega 100.000 elgi á hverju ári en fyrir tæpum tuttugu árum var fjöldi veiddra dýra tæplega 175.000 talsins. Stofninn í heild telur um 300.000 dýr. Ráðið leggur þar að auki til að girðingar meðfram vegum landsins verði styrktar til að koma í veg fyrir umferð elga um vegina og að verstu vegakaflarir, það er þar sem flestir elgir lenda fyrir ökutækjum verði merktir sérstaklega.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Innlent Fleiri fréttir Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Sjá meira