Íslenski boltinn

Umfjöllun: ÍBV á miklu flugi

Valur Smári Heimisson skrifar

ÍBV komst aftur á topp Pepsí-deildar karla og hefndi í leiðinni fyrir 2-0 tap á Laugardalsvellinum í fyrstu umferð með 1-0 sigur á litlausu liði Framara.

Eyjamenn voru án fyrirliðans Andra Ólafs, James Hurst og Denis Sytnik. 

Fyrri hálfleikur var ansi opinn og fjörugur en þar áttu bæði lið nokkur góð færi, fyrsta góða færið kom þegar Matt Garner átti flotta fyrirgjöf, beint á kollinn á Ásgeiri Aron sem var einn og óvaldaður en skallaði boltann framhjá markinu.

Aðeins mínútu síðar slapp Almarr Ormarsson einn í gegn eftir stungusendingu frá Jóni Gunnari Eysteinsyni, Almarr átti í erfiðleikum með að leggja boltann fyrir sig og endaði með að skjóta beint á Albert Sævarson í marki ÍBV.

Seinni hálfleikur var afar viðburðarlítill þrátt fyrir að eina mark leiksins hafi komi í þeim hluta leiks, en það var Danien Justin Warlem, suður-afríku maðurinn, sem skoraði eftir sendingu frá Þórarni Inga.

Þórarinn Ingi átti góða sendingu fyrir markið, Danien tók þunga snertingu og virtist vera að missa boltann frá sér en náði góðu skoti af stuttu færi með vinstri fætinum sem fór undir Hannes Þór í marki Framara.

Eftir þetta gerist lítið sem ekkert í leiknum, Eyjamenn fóru aftarlega á völlinn og lokuðu á allt það sem Framarar reyndu. Niðurstaðan því nokkuð sannfærandi 1-0 sigur á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum.

ÍBV-Fram  1-0

Áhorfendur: 852

Dómari: Jóhannes Valgeirsson 7

Skot (á mark):13-7 (8-6)

Varin skot: 6 – 7

Horn: 5-6

Aukaspyrnur fengnar: 8-11

Rangstöður: 2-5

ÍBV: 4-5-1

Albert Sævarsson 7

Matt Garner 7

Finnur Ólafsson 7

Þórarinn Ingi Valdimarsson 8

(80., Anton Bjarnason  -)

Tryggvi Guðmundsson 6

Tonny Mawejje 6

Ásgeir Aron Ásgeirsson 6

(77., Yngvi Borgþórsson  -)

Arnór Eyvar Ólafsson 6

Eiður Aron Sigurbjörnsson 7

Danien Justin Warlem 7

(68., Eyþór Helgi Birgisson 6)

Rasmus Steenberg Christiansen 8 - Maður leiksins

Fram: 4-4-2

Hannes Þór Halldórsson 6

Kristján Hauksson 5

Halldór Hermann Jónsson 6

Jón Gunnar Eysteinsson  7

Samuel Lee Tillen 6

Hjálmar Þórarinsson 6

(68., Guðmundur Magnússon  6)

Almarr Ormarsson 7

Jón Guðni Fjóluson 6

Tómas Leifsson 6

Jón Orri Ólafsson 6

Jósep Edward Tillen 6

(63., Ívar Björnsson  6)

(90., Daði Guðmundsson  -)

 

Til þess að lesa lýsingu leiksins á Boltavaktinni þarf að smella hér: ÍBV - Fram








Fleiri fréttir

Sjá meira


×