Enski boltinn

City ætlar að áfrýja brottvísun Balotelli - myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Balotelli fær hér að líta rauða spjaldið.
Balotelli fær hér að líta rauða spjaldið. Nordic Photos / Getty Images

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, segir að félagið ætli að áfrýja rauða spjaldinu sem Mario Balotelli fékk í leiknum gegn West Brom um helgina.

Balotelli skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri City en fékk svo að líta rauða spjaldið eftir viðskipti sín við Youssuf Mulumbu í síðari hálfleik. Samantekt úr leiknum má sjá hér.

„Ég er alls ekki sammála dómaranum. Fyrir hvað var þetta rauða spjald? Ég skil það ekki. Mér fannst þetta rangur dómur og dómarinn verður að útskýra þetta," sagði Mancini eftir leikinn.

„Mario var frábær í leiknum. Hann skoraði tvö mörk en rauða spjaldið var mjög furðulegt."

„Ég sagði honum fyrir leikinn að hann þyrfti að passa sig á dómgæslunni. Ég vildi setja Adam Johnson inn á fyrir hann en það gafst ekki tími til þess."

Balotelli kom til City frá Inter í sumar en hann var afar umdeildur á Ítalíu og lenti oft upp á kant við Jose Mourinho, þáverandi stjóra Inter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×