Innlent

Ræddi við Reinfelt og Stoltenberg

Mynd/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur í dag rætt við Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, um stöðu mála hér á landi í kjölfar synjunar forseta Íslands á Icesave lögunum.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að Jóhanna hafi óskað eftir skilningi landanna á því aukna svigrúmi sem Ísland þyrfi til að tryggja farsælar lyktir Icesave-málsins. Ráðherrarnir lýstu yfir vonbrigðum með þróun mála en lýstu jafnframt allir yfir vilja til áframhaldandi samstarfs við íslensk stjórnvöld í þeirri erfiðu stöðu sem upp væri komin. Ráðherrarnir sammæltust um að vera í frekari samskiptum næstu daga ef tilefni gæfust til vegna einstakra álitamála og næstu skrefa í málinu.

Áður hefur Jóhanna rætt við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands. Á morgun er fyrirhugað að hún ræði við Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur.




Tengdar fréttir

Össur fundaði með utanríkisráðherra Spánar

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ræddi í morgun við Miguel Ángel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, sem er í forsæti ráðherraráðs Evrópusambandsins samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Bretar beita sér ekki gegn umsókn um ESB

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði í viðtali við Reuters fyrir stundu að David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, hafi fullvissað sig um að Bretar myndu ekki beita sér gegn Íslandi og aðildarumsókn þeirra inn í ESB þrátt fyrir harðvítugar deilur um Icesacve.

Steingrímur fundar með erlendum ráðamönnum

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, heldur af landi brott í kvöld eða á morgun til fundar við erlenda ráðamenn. Ríkisstjórnin ætlar að sitja áfram þrátt fyrir synjun forseta en til stendur að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave málinu undir lok næsta mánaðar.

Jóhanna ræddi við Brown

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræddi við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, seinnipartinn í dag. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu, segir að þau hafi farið yfir stöðuna eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitaði að staðfesta Icesave lögin sem Alþingi samþykkti fyrir viku.

Össur búinn að ræða við Miliband

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti símafund með David Miliband, utanríkisráðherra Breta, eftir hádegið í dag. „Við fórum yfir stöðuna og það var alveg ljóst að hann þekkti hana mjög vel. Hann var vonsvikinn yfir þessu og það er þungt hljóð í Bretum" sagði Össur eftir símafundinn. Þá sagði Miliband ennfremur við Össur að það væru engar vísbendingar um að Bretar myndu beita sér gegn Íslendingum innan AGS.

Ráðamenn ræða áfram við forystumenn erlendra ríkja

Enn fjölgar í hópi þeirra leiðtoga erlendra ríkja sem íslensk stjórnvöld hafa sett sig í samband við eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjaði Icesave lögunum staðfestingar í fyrradag. Íslenskir ráðherrar hafa rætt við 15 erlenda starfsbræður og -systur og veitt vel á þriðja tug viðtala við erlenda fjölmiðla og fréttaveitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×